top of page
659ba0_b05ed306d22247fba382cb3adfb3833b~

UNGIR
UMHVERFISSINNAR

Ungir umhverfissinnar eru frjáls félagasamtök. Tilgangur félagsins er að vera vettvangur ungs fólks á Íslandi til að láta gott af sér leiða í umhverfismálum. 

1569

bx_bxl-twitter.png
bx_bxl-facebook.png
bx_bxl-instagram.png

félagar

Nokkur verkefni UU.

SÓLIN

Ungir umhverfissinnar hönnuðu kvarða til að meta umhverfis- og loftslagsmál í stefnum stjórnmálaflokkanna í framboði til Alþingis. Flokkunum var boðið til fundar með félaginu og til formlegrar einkunnaafhendingar í Norræna Húsinu 3.september 2021.

Verkefninu var ætlað að hjálpa almenningi að taka upplýsta ákvörðun í kjörklefanum sem og að vera flokkum í framboði aðhald og hvatning til að gera betur. 

Kvarðann er hægt að nota til að fylgjast með hvernig flokkum gengur að standa við sett loforð, en einnig fyrir flokkana sem hugmyndaauðgi til að koma umhverfis- og loftslagsmálum áleiðis.

Sólin square_yellow.jpg
DSC00093.jpg
Loftslagsverkföll

Ungir umhverfissinnar eru einn af bakhjörlum Loftslagsverkfallsins - Fridays for Future IS. Ásamt því að fjölmenna reglulega á verkföllinn kemur félagið að skipulagningu og kynningarstarfi Loftslagsverkfallsins.  Á hverjum föstudegi kemur fjöldi félaga og einstaklinga saman og vinna að sameiginlegu markmiði. 

Við viljum sjá stórauknar aðgerðir í loftslagsmálum!

Landsfundir

Landsfundir Ungra umhverfissinna verða haldnir fjórar helgar í vetur en þeir munu fjalla um mismunandi málefni innan félagsins: 

 

Náttúruvernd 29. - 30. okt 2021

Kynningar- og fræðslumál 26. - 27. feb 2022

Hringrásarhagkerfi 28. - 30. okt 2022

Loftslagsmál 6. - 8. jan 2023 

Fundirnir eru opnir öllu ungu fólki þ.e. ekki þarf að vera félagi í UU til að taka þátt. Við minnum þó á að aðild að félaginu er öllum að kostnaðarlausu. 

 

IMG_5125.jpg

Ungir umhverfissinnar halda árlega kynningar í framhaldsskólum landsins. Okkar helsta kynningarefni er miðað að framhaldsskólanemendum, en við getum tekið að okkur kynningar fyrir önnur skólastig, stofnanir eða félög. 
 
Kynningarnar varpa ljósi á hvernig umhverfismál tengjast ungu fólki og hvernig ungt fólk getur haft bein áhrif á ákvarðanir stjórnvalda og daglegt líf í þágu umhverfisins. 

Við höfum boðið upp á á kynningarnar gjaldfrjálst, en þar sem öll vinnan er unnin í sjálfboðavinnu eru frjáls framlög þegin

með þökkum.
 

Framhaldsskólakynningar
bottom of page